Gistiheimili Húsavíkur (Húsavík Guesthouse) er vinalegt gistihús sem stendur við Laugarbrekku á Húsavík. Þar er boðið upp á gistingu í eins, tveggja og þriggja manna herbergjum auk fjögurra manna fjölskylduherbergis. Húsið var reist árið 1947 og gert upp árið 2009. Gistiheimilið er í göngufjarlægð frá öllum helstu kennileitum á Húsavík. Þaðan er stutt að rölta niður að bryggju og innan við mínútu gangur er í sundlaug, verslun og bensínstöð.
Herbergi eru með uppábúnum rúmum og morgunverður er í matsal frá 7.45 til 10 á morgnana. Þráðlaust internet er í herbergjum, gestum að kostnaðarlausu.
Heimilisfang: Gistiheimili Húsavíkur, Laugarbrekka 16, 640 Húsavík
Bókunarsími: 463 33 99
